Snilldarhugmyndir Kristjáns

febrúar 6, 2008

#hiphop.is

Flokkað undir: Uncategorized — kristjano @ 2:36 pm

Hahaha, ég þarf að sýna ykkur lesendur góðir (helga og hlynur :) smá bita úr irc loginu af #hiphop.is.

<nammi_> haha já eins og þegar maður er í partyi og klukkan er 05:00
<Memekind> ha, hvað gerist þá :O
<nammi_> balls out

Þetta er í fyrsta skipti sem ég heyri um þessa reglu :/ Og satt best að segja þá líst mér bara _ekkert_ á hana! En reglur eru reglur og ef að partýhaldarinn er nógu svalur að halda það gott partý að ég nenni að hanga þar til 05:00 þá er bara eitt í stöðunni.

En mér finnst að þeir sem eru ekki með balls ættu að gera eitthvað annað. Eins og hmm.. ég er bara hreint ekki viss hvað annað. Kannski að lesendur góðir komi með einhverjar góðar hugmyndir :)

En jámms, ég fer síðan að redda þessari plötugagnrýni. Ég var búinn að skrifa eina plötugagnrýni en hún kom ekki upp á síðunni, þannig að ég þarf að laga það áður en ég fer að gagnrýna fleiri plötur.

Svo ætla ég að henda öðrum flokk hingað inn af fullt af teikningunum mínum. Það hefur nefnilega verið draumur minn lengi að búa til web comic, og þetta er kannski skref í rétta átt :P

Þannig að til að draga þetta allt saman, þá á ég eftir að laga þessa biluðu síðu, henda út balls í næsta partý-i og kíkið á #hiphop.is í spjall :D

friður, Kristján.

febrúar 4, 2008

Ubuntu ftw!

Flokkað undir: Fréttir af mér, Hugdettur — kristjano @ 10:39 pm

Loksins gerði ég það. Ég formattaði tölvuna, henti Vista og setti upp Ubuntu :D Og ég _elska_ það. Miklu flottara en Vista og runnar miklu betur. Eina vandamálið er að leikir eru venjulega ekki gerðir fyrir ubuntu og því erfitt að fara að hacka í gegnum það. En ég hlít að redda því seinna meir :D Yndislegt hvað allt er auðvelt í Ubuntu.

En anyways, hættur að reykja. Ekki lengur með nikótín stautinn og ekki neitt :P Ég hélt að mér myndi aldrei takast það, en það reyndist bara vera tussuauðvelt. Mæli með alla sem reykja að hætta og prófa þennan staut, hann virkaði mjög vel. Mig langar allveg stundum í sígó og ég kveikti mér í um daginn en henti henni síðan því mér fannst hún svo vond :D

Meiri bjór niðri í vinnu að renna út :/Sérmerktur thule bjór að renna út 10. mars 2008 og þar sem að hann er sérmerktur þá er ekki hægt að selja hann öðrum. Sem þýðir *sigh* að meira af bjór verður hent á næstunni :@! Mig minnir að á einu bretti af bjór séu 72 kassar af bjór og svo var auka sirka 15 kassar af bjór. Í hverjum kassa er 24 flöskur og í hverri flösku er 0,33L sem þýðir:

72 + 15 = 87 kassar * 24 = 2088 flöskur * 0,33L = 689.04L að minnsta kosti af bjór sem rotturnar fá að lepja :D

Hvernig væri að gefa rónunum eða fátækum eða eitthvað. Mér líður svo illa að sjá svona mikið af bjór fara til spillis. Það er vont í hjartað… *sniffsniff* </3

Hey btw, ég er að fara setja plötugagnrýni hérna til hliðar ->

P

Bloggaðu hjá WordPress.com.