Fyrir þá sem skilja ekki titilinn þá er ég þarna að tjá mig um að ég að byrja að blogg ([blog]) og hætta að reykja ([/reykja]). Ég er ekki búinn að reykja neitt í dag nema bara af hinum frábæra nicorette staut mínum (sem btw er ekki nærri því eins kúl
) og ég reykti bara þrjár í gær
.
Planið er að setja inn á þetta blogg mas. hugdetturnar sem ég fæ stundum bara alltíeinu og gleymi svo viku seinna. Þó það hljómi ótrúlega þá fæ ég ótrúlega góðar hugmyndir (að mínu mati amk.).
Eins og á mánudaginn, þá mætti ég í vinnunna eldhress klukkan átta og var tjáð að nú ætti að framfylgja verstu reglu fyrirtækisins. Ok, ég þarf kannski að útskýra áður en ég held áfram. Ég vinn hjá vífilfell. Ég er helst að vinna við afgreiðslu á áfengi. Okey, næst er það íslensk áfengislög. Mér skilst að lögin séu þannig að ef að áfengi er selt eða gefið þarf að borga áfengisgjöld. En ef áfenginu er eytt, þá þarf ekki að borga áðurnefnd gjöld.
Þið kannski sjáið hvert þessi saga er að fara
Mér var semsagt tjáð það að núna væru komnir menn frá ríkinu að fylgjast með mér eyða jólabjórnum. Þó svo að mér finnist jólabjórinn vondur, þá var ég samt alltaf hugsandi á meðan ég henti bjórnum ofaní “hakkarann”: “Þetta er samt bjór, andskotinn hafi það!”.
Einmitt þegar ég var búinn að sleppa hugsuninni þá datt mér snjallræði í hug. Af hverju ekki að henda þessum bjór bara í einhverjar beljur og láta þær lepja þetta sull eins og þær eiga lífið að leysa og geta ekki staðið. Selja síðan kjötið dýrum dómum líkt og Nóatún gerði hérna um daginn. Þetta held ég að myndi rokseljast. Enginn tapar
Ég ætlaði að henda inn einhverjum myndum inn í þetta blogg, en það verður að bíða þangað til að myndavélin kemst í lag. Þá fáiði kannski að sjá “hakkarann” á góðum degi. (Eða allan bjórinn sem ég umgengst allan daginn
Endilega hendið einni skoðun eða einhverju álíka skemmtilegu í komment.
ég vil sjá the hakkari
Comment af Helga — janúar 30, 2008 @ 5:39 pm
Ég er kominn með myndavélina í gang og allt. Hún er samt eldra en allt :/ Á ekki svona töff myndavél
Hérna er mynd af vélinni minni -> http://images.ciao.com/iuk/images/products/normal/633/product-5330633.jpg
Comment af kristjano — janúar 30, 2008 @ 6:19 pm