Snilldarhugmyndir Kristjáns

janúar 30, 2008

Mér er kalt á hausnum :/

Flokkað undir: Fréttir af mér — kristjano @ 10:25 pm
Tags: , , , ,

Enda var ég að shave-a buttið hausinn og það tekur smá tíma að venjast því. Ég er einhverstaðar með myndir af þessu og læt þær fylgja með. Já, svo fann ég einhverjar geðveikt gamlar myndir á myndavélinni minni sem eru reyndar ekkert merkilegar :/ En kannski þegar ég er búinn að fara í gegnum þær allar :P

Svo var ég að fá í hendurnar “Fable – The Lost Chapters” og er ætlunin að skrifa smá umfjöllunum um hann hérna, ég þarf bara að kanna hvernig það er hvort ég megi hyper-linka yfir á leikinn á The Viking Bay. Nenni ekki að vera að standa í einhverju lögfræðveseni. Ekki það sé eitthvað að búa bara til nýtt nafnlaust blogg :P

Ætlunin er að hafa inná milli torrent umfjallanir eins og er á rlslog.

Nóg um það, ég er farinn að fá mér bjór og spila fable :P

Ég meira sköllótturÉg er sköllóttur :)

[blog][/reykja]

Flokkað undir: Hugdettur — kristjano @ 12:59 pm
Tags: , , ,

Fyrir þá sem skilja ekki titilinn þá er ég þarna að tjá mig um að ég að byrja að blogg ([blog]) og hætta að reykja ([/reykja]). Ég er ekki búinn að reykja neitt í dag nema bara af hinum frábæra nicorette staut mínum (sem btw er ekki nærri því eins kúl :D ) og ég reykti bara þrjár í gær :) .

Planið er að setja inn á þetta blogg mas. hugdetturnar sem ég fæ stundum bara alltíeinu og gleymi svo viku seinna. Þó það hljómi ótrúlega þá fæ ég ótrúlega góðar hugmyndir (að mínu mati amk.).

Eins og á mánudaginn, þá mætti ég í vinnunna eldhress klukkan átta og var tjáð að nú ætti að framfylgja verstu reglu fyrirtækisins. Ok, ég þarf kannski að útskýra áður en ég held áfram. Ég vinn hjá vífilfell. Ég er helst að vinna við afgreiðslu á áfengi. Okey, næst er það íslensk áfengislög. Mér skilst að lögin séu þannig að ef að áfengi er selt eða gefið þarf að borga áfengisgjöld. En ef áfenginu er eytt, þá þarf ekki að borga áðurnefnd gjöld.

Þið kannski sjáið hvert þessi saga er að fara :) Mér var semsagt tjáð það að núna væru komnir menn frá ríkinu að fylgjast með mér eyða jólabjórnum. Þó svo að mér finnist jólabjórinn vondur, þá var ég samt alltaf hugsandi á meðan ég henti bjórnum ofaní “hakkarann”: “Þetta er samt bjór, andskotinn hafi það!”.

Einmitt þegar ég var búinn að sleppa hugsuninni þá datt mér snjallræði í hug. Af hverju ekki að henda þessum bjór bara í einhverjar beljur og láta þær lepja þetta sull eins og þær eiga lífið að leysa og geta ekki staðið. Selja síðan kjötið dýrum dómum líkt og Nóatún gerði hérna um daginn. Þetta held ég að myndi rokseljast. Enginn tapar :)

Ég ætlaði að henda inn einhverjum myndum inn í þetta blogg, en það verður að bíða þangað til að myndavélin kemst í lag. Þá fáiði kannski að sjá “hakkarann” á góðum degi. (Eða allan bjórinn sem ég umgengst allan daginn :)

Endilega hendið einni skoðun eða einhverju álíka skemmtilegu í komment.

Bloggaðu hjá WordPress.com.